sunnudagur, apríl 09, 2006

Hljóðneminn er loksins kominn á sinn stað. Við UNNUM Gettu Betur (og þegar ég segi við meina ég auðvitað Ásgeir, Magni og Tryggvi)! Það var æðislegt, svo mikið æðislegt! Meira en helmingur MA-inga þustu suður þrátt fyrir brjálæðisveður, til að styðja sína menn. Á leiðinni voru æfð klöpp, gömul og ný, og skólasöngurinn líka. Þegar við unnum sungum við hann svo fullum hálsi. Ótrúlega ánægjuleg kvöldstund með öskrum, klappi, hlátri, gráti (gleðitárum) og öllu tilheyrandi. Fullkomið.
Eftir keppni héldu einhverjir MA-ingar heim aftur, en ég og 200 eða svo aðrir héldum áfram stanslausa stuðinu í Menningarferð 2006. Við breiddum úr okkur í MR (og við erum staðráðin í því að MR sé nú vinaskóli okkar) og fór að sjálfsögðu vel um okkur þar. Við gerðum ýmislegt menningarlegt, fórum til dæmis á Forðist okkur eftir Hugleik Dagsson, menningarlabb í boði Stjórnarinnar sívinsælu, Söngkeppni framhaldsskólanna, keilu, mat til Valgerðar Sverrisdóttur í ráðhúsinu og margt margt fleira. Svo var mikið spilað, spjallað og hlegið þessa daga, good times.
Síðasta helgi var auðvitað góð líka, en þá fór ég fyrst að horfa á Gettu Betur strákana okkar vinna MH, og svo á tónleika með Katie Melua kvöldið eftir. Í millitíðinni tókst mér samt að missa af Jóel Pálssyni spila í MA, grimmd örlaganna...
En jæja, læt þetta nægja.
P.S. Skellti inn myndum úr menningarferðinni

Auður | 21:34 |

laugardagur, mars 25, 2006

Síðan síðast:

  • 3x forpartý og svo Sjallaferð -óóótrúlega gaman
  • Karlakvöld- úff
  • Kvennakvöld-Óðinn foli á hug okkar allan
  • Söngkeppni- sú besta hingað til (þó að Hafliði hefði átt að komast í sæti)
  • Kaffiboð- brjálæðislega stelpulegt
  • Brynjuísferð- það var svo gott veður
  • Kristjana heim- Jeiij!
  • Ratatoskur- líka sá besti hingað til
  • 2x ritgerðir, 7x próf...
  • Palli og stjórnin í Sjallanum í gær- magnað

Nú fer að líða að því að ég þurfi að fara að vekja Theodóru til að fara að skrifa ritgerð. Hún á eftir að hata mig...

P.S. Ævar komst inn!!! :)

Auður | 20:04 |

föstudagur, mars 03, 2006

Það er ótrúlega margt um að vera, svo margt að segja! Samt hef ég ekkert að segja... Jú, ég get sagt frá því að ég fór í æðislega ferð til Reykjavíkur í gær, þar sem við kepptum við MR í Gettu betur. Til að byrja með var nokkuð góð stemning í rútunni alla leið suður og svo var stemningin svo rosaleg á keppninni sjálfri að það hefði mátt skera hana með hnífi. Ég hef sjaldan vitað eins jafna og fáránlega spennandi keppni, en hún endaði vel 26-24 fyrir okkur. Strákarnir okkar (Tryggvi Páll, Ásgeir og Magni) stóðu sig ótrúlega vel, flottir strákar. Hinir voru flottir líka, og allt fór þetta mjög vel fram.
Við brunuðum svo bara til Akureyrar aftur, og á leiðinni horfðum við m.a. á Fuglastríðið. Það er langt síðan að mynd hefur sært blygðunarkennd mína eins átakanlega... Hún er rosaleg!
En já, svo er líka vert að minnast á gott kokteilpartí sem að ég fór í um síðustu helgi. Salka var gestgjafinn, og var þemað bleikt og áfengt. Gaman að því
Újá, fyrst að ég er byrjuð að segja frá partýum verð ég nú að segja frá brilljant Eurovision partýi. Ég vissi ekki betur en að ég væri að fara að hosta teiknimyndapartý, en svo hringdi Edda inspectrix og bauð mér og öllu liðinu í partý til sín. Þar var stjórnin fyrir og mikið stuð. Eftir þetta mikla stuðpartý var farið í Kjarnaskóg og svo eftirpartý, og vorum við að skríða heim klukkan að ganga 6... Brilljant!
En jæja, ætli ég láti þetta ekki nægja í bili

Auður | 15:41 |

miðvikudagur, febrúar 08, 2006

Good times...
Síðan prófin kláruðust (og ég sem hélt að þau myndu aldrei taka enda) hefur allt verið gott og gaman. Fuglarnir syngja, börnin hlægja... ástin blómstrar? Nei ég get ekki einu sinni þóst vera svona væmin;) Hins vegar hafa síðustu dagar verið alveg hreint meiri háttar skemmtilegir!
Eyddi vetrarfríinu í Englandi, hjá Magnúsi bróður og Sölku vinkonu. Albert og Theodóra fóru með mér, og Sunna og Jónína voru líka. Við fórum fyrst til Hull að heimsækja Sölku og fjölskylduna, og skoðuðum svo London. Það var allt saman æðislegt!
Mín beið reyndar hræðilegt áfall þegar ég kom heim... Nýja stundartaflan. En ég kemst yfir það (í vor einhverntíma).
Síðasta helgi var líka með þeim betri lengi! Ég fór vestur á þorrablót, sem var auðvitað óóótrúlega gaman! Hitti alla mína heittelskuðu vini og fjölskyldumeðlimi og skemmti mér eins og aðeins er hægt að gera á þorrablótum!
Svo var brunað til Akureyrar aftur til að (haldið ykkur) fara í Bachelorette MA. En ekki til að keppa að sjálfsögðu. Þetta var fáránlega skemmtilegt, og svo mikið fyndið;) Allir að mæta á kvöldvöku á mánudaginn að sjá afrakstur helgarinnar! :D
Með þessu kveð ég, ég þarf að sofa:)

Auður | 21:54 |

þriðjudagur, janúar 24, 2006

Árið 2005 var eiginlega alveg frábært.
Það byrjaði reyndar ekki vel, með fyrstu prófatíð minni í Menntaskólanum. Aldrei hafði ég nokkurn tíma verið jafn dugleg að læra. Öll helgin fór í að læra stærðfræði og ég var orðin alveg gjörsamlega heilaþvegin! Sem betur fer var Theodóra mér við hlið allan tímann, hefði ekki getað þetta án hennar (og ég meina það ekki á svona væminn sentimental hátt, heldur bara hefði ég aldrei gert þetta annars)
Eftir prófin tók við æðisleg vika í Skagafirði. Ég fór í elsku gamla skólann og FNV með Tinnu og Sigrúnu, hitti fjölskylduna og vinina og slappaði af eftir hræðilega törn.
Þegar ég byrjaði í skólanum aftur komst ég að því mér til mikillar ánægju að ég væri með Theodóru í stærðfræði.
Í byrjun febrúar fór ég á þorrablót með fjölskyldunni, og skemmti mér auðvitað frábærlega. Svo fór ég á næsta þorrablót með Thodóru og Steingrími, Tinnu, Sigrúnu, Lilju og fylgifiskum. Það var frábært líka. Í lok febrúar byrjaði Rígurinn með tveggja sólarhringa skemmtun (sem var hugsað sem fjáröflun en var í raun bara taumlaus gleði). Uppúr því man ég ekkert nema Ríg í margar vikur. Rígur strax eftir skóla og langt fram á kvöld, allar helgar, alla helgidaga nema páskadag og annan í páskum, Rígspartý, Rígsæfingar, Rígsfólk. Ótrúlegt. Náði þarna í það sem núna eru mínir allra bestu vinir;)
Eins erfitt og það var tók Rígurinn enda. Fórum reyndar í eina frábæra Rígsútilegu, en svo var það bara sumarvinnan. Ekki það að ég hafi látið mér leiðast mikið. Ég fór í útilegur og sumarbústaði, fór í Mývatnssveit með fjölskyldunni, í lost-maraþon með Al&The, til Reykjavíkur í brúðkaup og síðast en alls ekki síst til Þýskalands með Theodóru. Eftir að hafa kvatt elsku Björgu (sem reif sig upp of fór til Kína!!) stukkum við Theodóra á stað út í óvissuna. Þar eyddum við dögunum í sólböð, hestamennsku, að læra þýsku, fylgjast með CJ og fleira gott;) Einn af hápunktun ársins var þó tvímælalaust Londonferð, þar sem ég fór í útskrift Magnúsar, og á Live8. Við Kristjana fórum saman (í boði Magnúsar) á Live8, sem eru flottustu tónleikar sögunnar með öllum flottustu tónlistarmönnum samtímans.
Menntaskólinn var settur um miðjan september, og ég var talsvert mikið sáttari við það heldur en árið áður. Maður endurheimti bestu vinina, td frá Noregi og eitthvað utan af landi, og LMA starf byrjaði. LMA starf byrjaði jú aldeilis með hvelli, en strax í fyrstu viku fengum við blauta tusku í andlitið og máttum eyða öllum stundum næstu daga við að reyna að leysa úr vandamálum sem því fylgdu. Allt gekk þó fyrir rest og við komum af stað, með hjálp okkar yndislegu leikstýra Álfrúnar og Estherar, Ósýnilega Kettinum. Það var auðvitað mikið ævintýri, og þar eignaðist ég einmitt minn uppáhalds slúður hóp! Frábærar stelpur, og mjög góð viðbót í vinkonuhópinn minn;)

Albert og chicks á góðri stundu (kattarfólk allt:)

Ég gerði mikið af því að leika við vini mína í frístundum (sem voru ekkert margar þegar skóli, (ekki)heimavinna, kattaræfingar, LMAstjórnarstarf, kórinn og einstaka sinnum svefn er frátalið) og hélt td tvö vel heppnuð óvænt afmæli í Holtateigi, bæði þegar Hafliði varð tvítugur og Theodóra varð 17.
Árshátíðardagurinn rann upp skír og fagur, og var bara yndislegur frá upphafi til enda. Þar var Jóel. Neinei, það voru nú fleiri þarna;) Ég dansaði fullt af sætum strákum og stelpum og skemmti mér konunglega. Hljómsveitin hélt uppi stuðinu, með Jóel (og Pál Óskar) í broddi fylkingar. Og elsku stjórninn! Huginsstjórnin er, eins og ég hef örugglega áður tekið fram, yndisleg og frábær á alla kanta (og sæt, það vantar ekki;) og það sannaðist sko þarna. Enginn hefði getað haldið flottari árshátíð (and they brought Jóel).
Svo var kötturinn frumsýndur viku seinna, og það var æðislegt! Hamingjuóskunum rigndi yfir okkur (aftur enter the great Huginsstjórn sem mætti með pizzur fyrir alla), og það komu á fjórða hundrað að sjá sýninguna. Auðvitað voru haldin fullkomlega vel heppnuð partý í tilefni af þessu öllu;)
Svo komu jólin, þau voru góð. Litla fjölskyldan mín var hér samankomin, reyndar í óvenjustuttan tíma, en góðan þó. Eitt það besta við jólin var nýjasti fjölskyldumeðlimurinn sem bættist í hópinn milli jóla og nýárs. Sú heitir Tína og er ææææðisleg!

Tína mín

Jæja, ég er farin til London! :D
P.S. Ef að þið skiljið ekki hvað málið er með Jóel, þá eigið þið ekki að gera það, þetta er bara einkahúmor;)

Auður | 10:54 |

laugardagur, janúar 07, 2006

Jæja. Jólin eru búin, þau voru góð. Prófin hinsvegar eru framundan, ekki eins gott. Sé næstum eftir því núna að hafa ekkert lært í allan vetur, en hey... En það eru 4 dagar í fyrsta prófið og þá einungis 18 í það síðasta. Svo eru 9dagar í að elsku Björg komi heim!!! :D
Farin að læra (yeah ræt!)

Auður | 20:44 |

sunnudagur, desember 18, 2005

Margt hefur gerst síðan síðast. Ósýnilegi Kötturinn var frumsýndur fimmtudaginn 8. des og fengum við einróma lof gesta. Sýndum 7sinnum, og slóum aðsóknarmet í hvert skipti! Á lokasýningunni í gær þurftum við að bæta við 30 stólum við upprunalega planið!
Í tilefni af lokasýningu í gær héldum við smá lokahóf, heima hjá mér. Húsið hjá mér fylltist af fólki, pizzum, söng og gleði, og var hér mikil gleði fram undir fjögur. Æðislegt pakk;)
Kvöldið þar áður kom slatti af Rígsfólki hingað og komum við okkur fyrir í góðri flatsæng sem Theodóra og Albert hönnuðu, og horfðum á videó. Æði.
Svo styttist í jólafrí, skrítið... En allavegana, þá sá ég skondinn og skemmtilegan leik hjá Kristjönu systur, og ætla að taka hann upp hér líka!
Ef að þið kvittið í comment, þá mun ég:
1. Segja þér eitthvað handahófskennt um þig
2. Segja þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig
3. Segja þér hvaða bragð minnir mig á þig
4. Segja þér eitthvað sem meikar bara sens fyrir mig og þig
5. Segja þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér
6. Segja þér á hvaða dýr þú minnir mig
7. Spyrja þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig

Auður | 12:10 |

laugardagur, desember 03, 2005

Árshátíðin... Ég á bara ekki til nein orð til að lýsa henni, svo einfalt er það. Ég hef aldrei upplifað glæsilegri samkomu, flottara eða hamingjusamara fólk, betri dansherra eða meiri gleði.
Kattaræfingar eru nú á fullu, og þar er allt undir kontról. Þetta verður æði! Fórum saman á skauta og út að borða í gær og það var ekki lítið gaman! Þið getið skoðað myndirnar hér!

Auður | 18:30 |

sunnudagur, nóvember 20, 2005

Það er stundum svolítið mikið að gera hjá mér... Ekki það að það sé endilega slæmt (sem atburðir síðustu daga sanna jú).
Á fimmtudaginn fórum við Albert á Fullkomið Brúðkaup og skemmtum okkur konunglega. Áttum reyndar að vera heima að læra fyrir stæ próf, en...
Á föstudeginum fór ég með Theodóru og Sunnu á Karólínu, þar sem Sunna kynnti okkur fyrir Karómenningunni, við hittum Tóta, og Theodóra litaði fallega mynd í litabók.
Laugardagurinn var góður. Byrjuðum á að keyra um allan bæ og meira til í leit að propsi og öðrum nauðsynjum fyrir leikritið. Fórum svo beint á æfingu, og þar var endalaust leynimakk í gangi. Því að jú, planið var að halda óvænta afmælisveislu fyrir Theodóru um kvöldið. Skipulagning þessa afmælis var með eindæmum erfið og ég var hérumbil komin með magasár af stressi. Ég tók sénsinn á að blanda saman tveimur vinahópum sem ekki þekktust neitt (skil varla að ég hafi þorað það vegna þess að ég hafði ekki Theodóru mér til halds og trausts) í afmæli, og var næstum viss um að það myndi fara í vitleysu. Svo var það nú ekki auðvelt fyrir manneskju eins og mig að leyna einhverju fyrir manneskju eins og Theodóru, en sem betur fer grunaði hana ekkert.
Um kvöldið fórum við Theodóra, Albert og Hafliði í bíó, á The Exorcism of Emily Rose, og ætluðum auðvitað að nota þessa stráka okkar í að halda í okkur lífinu. En svo kom í ljós að það var enginn tilgangur með þeim, því myndin var ekkert skerí. Bömmer.
Þá skutluðum við Hafliða á vistina og fórum sjálf á rúntinn. Ég tafði fyrir þangað til ég fékk boð um að við mættum koma heim. Þegar við komum þangað stukku fram 3 peð og einn Hafliði, og varð þá svaka partý. Við borðuðum kökur, spjölluðum og spiluðum, og var þetta fullkominn success. Áhyggjur mínar voru alveg óþarfar, krakkarnir blönduðust svona vel, enda ekki við öðru að búast af svona klassa fólki (sérstakan heiður fá þó strákarnir sem lögðu í þetta ókunnuga stelpnastóð). Fyrstu gestirnir fóru um 3leytið, síðustu um hálf 2 daginn eftir.
Theodóra var víst töluvert ánægð með kvöldið (hún hreinlega ljómaði), og þurfi að fara yfir allan daginn og síðustu daga til að skilja hvernig þetta gat gerst án þess að hún fattaði neitt.
Ég hefði nú ekki getað skemmtað mér betur þó að þetta hefði verið mín eigin afmælisveisla enda , eins og Theodóra orðaði það sjálf, var allt uppáhaldsfólkið hennar, allir bestu vinir hennar (og þar af leiðandi mínir líka) samankomnir(nema Björg auðvitað...)!
Ef að þið viljið getiði skoðað myndir frá afmælinu, eða lesið lýsingar Theodóru á kvöldinu en ég er farin að læra.

Auður | 18:29 |

þriðjudagur, nóvember 08, 2005

Mæli með:
  • Katie Melua ( td Nine Million Bicycles og Closest Thing to Crazy)
  • Stuck in the Moment með U2.
  • Og Theodóru og Alberti (sjá mynd fyrir neðan). Getur ekki klikkað.

    P.S. Vitiði hvað? VITIÐI HVAÐ?
    Björgin mín kemur heim í janúar!

Auður | 23:53 |

sunnudagur, október 23, 2005


Það er ekkert betra.

Auður | 19:40 |

laugardagur, október 15, 2005

Jæja já! Þið sem voruð farin að undrast um mig getið andað léttar, ég er á lífi:) Eins og áður hefur komið fram fer allur minn tími í LMA og skólann, fyrir utan það að ég er í kór og tónlistarskólanum... Ég er ekki að vorkenna mér samt, langt því frá, því þetta er rosalega gaman.
Til að segja aðeins um það hvað hefur á daga mína drifið undanfarið (ætla samt ekki að tala um endalausan tíma sem fór í stæheimaverkefni, íslenskuritgerð, þýskufyrirlestu og sögufyrirlestur):
Fór til Húsavíkur síðustu helgi. Afhverju spurja margir, og svarið er einfalt. Ég var leiðbeinandi í leik sem heitir Á flótta hjá Rauða Krossinum, svona eins og ég tók þátt í í Febrúar. Það var geðveikt gaman, mikið stuð og lítill svefn.
Í fyrrakvöld fór ég í afmæli hjá frænda mínum, og fór svo á Bláu Könnuna (sem hefur einmitt verið eins og nýtt heimili mitt vegna þess að LMA fundar svo oft þar) 10min fyrir lokun til að kveðja uppáhalds kaffibarþjóninn okkar, hann Tóta. Sátum þar til miðnættis, fengum kampavín með rósablaði og við Theó lærðum bæði að búa til að drekka Espresso, geðveikt svalar;) Svo einmitt hjálpuðum við til að ganga frá og þrífa, sem var líka kúl:)
Í gær var svo ein allsherjar afmælisveisla. Við Theodóra erum lengi búnar að vera að skipuleggja að halda uppá tvítugsafmæli Hafliða, og það var í gær. Við vorum búnar að útnefna drykkjanefnd, skreytinganefnd, meðlætisnefnd, bakstursnefnd og Hafliðanefnd og allir stóðu sig með prýði. Við Theodóra (sem vorum í bakstursnefnd) buðum uppá bollur, smákökur, vöfflur með súkkulaðibitum og súkkulaðikökubíl! Þegar þessi rosalega veisla var búin fórum við svo í aðra til Hrefnu. Þar var ég dæmd úr leik um miðnætti fyrir að vera leiðinlegasti afmælisgesturinn og send heim að sofa. Rosalega góður dagur:)

Auður | 10:44 |

fimmtudagur, september 29, 2005

Halló halló halló! Ákvað að grípa tækifærið til að blogga þar sem að ég hef allt kvöldið frítt! :D Síðustu dagar eru búnir að vera, vægast sagt, frekar uppteknir. Hef einu sinni náð að koma heim í kvöldmat síðustu 2 vikurnar (með smá ýkjum). Vegna mikilla ítrekanna systur minnar ákvað ég að taka þátt í leiknum hennar (biturð í rödd) og skrifa 5 atriði um sjálfa mig:

1. Ég er alls staðar að. Ef að einhver álpast til að spyrja mig hvaðan ég sé, þá gæti þetta orðið svarið: Ég er fædd og uppalin á Akureyri. Samt ekki alveg. Er ættuð úr Eyjafirði og Mývatnssveit, en ekki bara. Ég er 1/4 Eyfirðingur (afi í mömmu ætt, frá Fagraskógi), 1/4 Svarfdælingur (amma í mömmu ætt) , 1/4 Mývetningur (afi pabba) og 1/4 Vopnfirðingur (Theodóra... og amma pabba megin). Fyrir utan það er ég Skagfirðingur, Akureyringur, Íslendingur, Malawibúi, heimsbúi og ég veit ekki hvað og hvað...
2. Ég er svo ótrúlega heppin að eiga stóra og góða fjölskyldu. Kjarnafjöskyldan mín er að vísu little and broken (quote frá Stitch, mikið notað í fjölskyldunni) but still good. Þrátt fyrir að hitta systkini mín bara endrum og eins erum við nánari og betri vinir en flest systkini sem ég þekki. Svo á ég tvö sett af fósturforeldrum í Skagafirði og lítil systini líka. Þau eru það besta í heimi, öll sömul.
3. Svo á ég urmul af vinum. Peðin mín og stelpurnar í Skagafirðinum eru bestu vinkonur sem hægt væri að kjósa sér. Teiknimyndakrúið mitt er endalaust skemmtilegur hópur, Rígskrakkarnir líka sem og fullt af öðrum nýjum og gömlum. Ekki má þó gleyma að minnast spez á fólkið á húfunni sem ég er að horfa á! Hversu margir eiga húfu með mynd af bestu vinum sínum;)
4. Ég ætla ekki að reyna að koma með neina karakterlýsingu, en ég er krabbi... Mikill krabbi... Og ég er í stórkostlegri tilvistarkreppu.
5. Mér finnst fátt skemmtilegra en að ferðast. Á aldrei eftir að sjá nóg af heiminum til að svala þessari ævintýraþrá og bara útþrá sem hefur fylgt mér frá því að ég flutti frá Afríku. "But you can have roots and wings" (Sweet home Alabama). Fleiri áhugamál mín eru td leiklist (er í stjórn Leiklistarfélags MA) söngur og tónlist (hef verið í kór í 100ár og er í tónó, svo er ég alltaf að hlusta á tónlist), hestar (á Brönu og Meistara) og ýmislegt... Svo á ég (næstum fullkomið) safn af öllum meistaraverkum Disney, elska teiknimyndir;)
Jæja, læt þetta nægja. Klukka Theodóru, Margréti, Kamillu, Huldu Rún og og Sigurlínu. (Pay it forward... ;)

Auður | 19:34 |

þriðjudagur, september 20, 2005

Komst heim um helgina, ójá! Rifjaðist upp fyrir mér að ég á þar yndislega fjölskyldu, og að mér líður hvergi betur... Ekki það að það hafi nokkurn tíma gleymst, en samt! Fór semsagt heim til að vera við göngur og réttir. Vil meina að fólk þar hafi jafnvel verið farið að sakna mín aðeins (sem er bara sanngjarnt miðað við það hvað ég hef saknað þeirra!) og ég ætla að gerast svo djörf að segja að þau hafi verið næstum jafn glöð og ég:) það var slegið upp hverri veislunni á fætur annarri vegna þess eins að ég var mætt á svæðið;) Á Ökrum hefur risið stærðarinnar bygging í fjarveru minni, sem á að verða að fjósi fyrir 80 kýr í lausagöngu. Vissi svosem alveg að þetta ætti að vera stórt, en eins og félagi minn sagði, þá veitir þetta skjól fyrir alla Blönduhlíðina!
Á laugardeginum fórum við systur í Varmahlíð að taka upp kartöflur, og svo komu skólastjórahjónin í veislumat um kvöldið. Gaman að segja frá því að við borðhaldið var einmitt tekin ákvörðun um stærðfræðinám mitt næstu 3 árin...
Á sunnudeginum fór ég í afmæli til litla frænda á Skörðugili og hitti þar eitt stykki bestu vinkonu (sem er einmitt skammarlega langt síðan að ég hef séð!). Stoppaði þó ekki eins lengi og ég hefði viljað því þá var komið að því að reka féð í réttina. Lögðum af stað, öll nema minnsta systir, með nesti og nýja skó í þennan ágæta 15km rekstur. Minnsta systir kom svo líka þegar fór að líða á göngurnar og gekk með okkur, þangað til þær systur náðu að sníkja far á hestum gangamanna.
Mánudagurinn var drulludagur. Fórum í réttir en fundum EKKERT sem tilheyrði okkur þannig að við drógum bara fyrir Miklabæ. Fórum heim, sammála um að þetta hefði ekki verið ferð til fjár, en ekki slæm fyrir því. Fórum eftir hádegi að taka upp fleiri kartöflur og síðan var ég keyrð og sótt til Akureyrar... Þjáist nú af fráhvarfseinkennum og er því búin að plana ferðir í Skagafjörðinn aftur næstu og þarnæstu helgi... ;)
P.S. Gleymdi næstum að segja frá því að hápunktur helgarinnar var klárlega þegar mér tókst að kenna litlu systur (sem er 7ára) Stærri en allt dansinn! :D

Auður | 21:08 |

þriðjudagur, september 13, 2005

Það hlaut að koma að því... Er semsagt komin heim aftur eftir tæplega mánaðardvöl í burtu. Ísland tók á móti mér svívirðilega kalt, blautt og vindótt, en hey, þetta væri ekki Ísland annars. Sem vekur enn og aftur upp spurninguna um hvaða fífli datt í hug að byggja Ísland, en við förum ekkert nánar út í það. Þýskaland var gott, frábært reyndar. Fullt af flottum hestum, góðu fólki, týndum ættmennum mínum, sól og skemmtun. Ég gæti setið tímunum saman og skrifað upp sögur úr ferðinni, en ég ætla frekar að fá að njóta þess að segja þær in person... Til að ég geti sagt þær oft:D Ef að þið hafið áhuga gæti ég líka þulið upp fyrir ykkur Ein Köningreich fur ein Lama, þar sem ég horfði 3var á hana... :D
En já, svo byrjar bara skólinn af fullri hörku á fimmtudag og maður verður að fara að takast á við raunveruleikann aftur... Skrítið...
Boom Baby! :D

Auður | 14:54 |

þriðjudagur, ágúst 16, 2005

Jæja! Vegna fjölda áskoranna (flestra frá Theodóru) hef ég ákveðið að skrifa aðeins hér! Nei, ég lýg því... Ég er bara að því afþví að ég á einmitt ekki að gera það:(
Undanfarnir dagar hafa verið brjálaðir! Ég hef ekki haft tíma til að sofa síðustu vikur, hvað þá meira. En hér er ég.
Um þar síðustu helgi fór ég í alveg dásamlega vel heppnaða fjölskyldu útilegu með bræðrum mömmu og fjölskyldum í Mývatnssveit. Þar gengum við um allt og skoðuðum, grilluðum læri, spiluðum og spjölluðum og síðast en ekki síst lékum við hvolpinn sem ég var að passa.
Vikan þar á eftir fór í vinnu, hundagöngur, að kveðja bestu vinina (Albert, Unnur Birna, Ævar og Hulda Rún voru þau einu sem ég komst yfir:S), að skipuleggja kveðjupartý fyrir Björgu og útbúa kveðjugjöf fyrir hana, taka til eftir hundinn (hryðjuverkamaður það dýr!) og redda hinu og þessu.
Síðustu helgi fór ég svo til Reykjavíkur í brúðkaup, sem var æðislegt! Kolla frænka og Aron voru að gifta sig og Hrafnhildur litla systir var hringaberi (tvímælalaust á topp 5 lista yfir krúttlegustu hlutum ársins!).
Kveðjupartýið var í gær og það var fullkomið! Við skáluðum í fordrykk í Vaðlaheiði, grilluðum og borðuðum dásamlegan mat og æðislegan eftirrétt, töluðum mikið og dáðumst að gjöfinni, sem var minningabók sem við stelpurnar vorum búnar að vinna af svo mikilli ást (og svoooo miklum tíma og þolinmæði) að það sást langar leiðir! :) Það besta var svo að við kvöddumst ekki... :)
Í morgun fór ég svo að læra fyrir bílprófið, og Björgin mín með. Gaman að segja frá því að við stóðumst það með glans, og ég þakka (Guði;) góðu samstarfi fyrir það, takk Björg:)
Núna er ekkert mikið eftir á to-do listanum mínum.... Bara að koma merinni minni í sónar (nei, er ekki að grínast!) og svo í hólfið til Meistara, kveðja ömmu og afa, fara í bankann og kveðja í vinnunni, fara í Abaco, fara í heilun, hringja uþb átjánhundruð símtöl, þvo fullt af þvotti, taka til eftir partýið í gær og... Æi já, pakka! Þannig að, naturally, sit ég hér við tölvuna og geri ekki neitt! :D
En ætli ég láti þetta ekki nægja í bili, hafiði það bara sem best!

Auður | 17:31 |

þriðjudagur, ágúst 02, 2005

Ég var að upplifa þrumuveður á Akureyri! Sem er mjög merkilegt af því að þetta er í fyrsta skipti á minni 16, nei 17 ára (vá hvað maður er að orðinn gamall allt í einu!) ævi sem ég lendi í þrumuveðri hér!
En jæja, verslunarmannahelgin er nú afstaðin. Við ákváðum að við skyldum sko aldeilis skemmta okkur um heligna og fara út öll kvöld! Tókum forskot á sæluna og fórum í bíó á fimmtudagskvöldið, á Madagascar, og var það hin mesta skemmtun. Ferðin heim dógst aðeins á langinn því við þurftum mikið að tala, en það virðist gerast í hvert skipti sem við Theodóra, Albert, Unnur og Ævar komum saman. Alberti tókst samt að koma í veg fyrir að við færum inn, þannig að það varð ekkert klósettpartý í þetta skiptið heldur stóðum við úti við kanínubúrið.
Þetta ætlaði nú alveg að fara með okkur, því kvöldið eftir vorum við Albert (sem erum vinnandi fólk) gjörsamlega laus við það að vera í stuði og vildum bara fara heim að sofa. Theodóru tókst samt að sannfæra okkur um að koma með sér á KA ballið, en Albert pullaði Albert um 2leytið og fór heim að sofa. Eftir það skemmtum við stelpurnar okkur konunglega;)
Það sem eftir var af helginni vorum við bara að væflast niðri í bæ, hittum fullt af fólki, td Guðna Líndal og aðra góða úr Borgarfirði, skólafélaga, vinnufélaga, fyrrverandi skólafélaga, skyldfólk og fleiri vini... Unnur Birna og Ævar komu okkur svo á gestalista hjá Pöpunum (tölum ekki meira um það...;) og okkur finnst við eiga fullt af kúl-stigum skilið fyrir það (en það eru aðeins skiptar skoðanir á því...). Yfir allt var þetta mjög góð helgi, þrátt fyrir að hafa vaknað alla morgna um níuleytið eftir einungis 4-7 tíma svefn... Næ þessu upp í vikunni;)

Auður | 19:06 |

sunnudagur, júlí 24, 2005

Lost! Það er orð dagsins, klárlega! Við Albert og Theodóra ákváðum að gera eitthvað skemmtilegt um helgina, og kom þá útilega sterkt til greina. Það var einróma samþykkt (af öllum nema Alberti) að Albert skyldi verða skemmtanastjóri og boðaði hann til fundar hjá sér kl 4 í gær. Það var stór stund í lífi okkar Theodóru, en við fengum loksins að koma heim til hans! Eftir nokkra klukkutíma, miklar umræður og rökræður, nokkrar saxafónkennstundir, skoðunarferðir, njósnarastig og ég veit ekki hvað-og-hvað komumst við að engri niðurstöðu. Við komum til að skipuleggja útilegu, en eftir aðeins meiri umræður komumst við að því að við vildum ekkert annað en Lost maraþon. Þannig er mál með vexti að við 3 eigum það sameiginlegt (eins og svo margt annað;) að hafa ekki séð nema 1 Lost þátt hvert (og við virðumst vera þau einu á Íslandi sem ekki hafa fylgst æst með þessum þáttum). Þar með var það ákveðið, en til að halda í útilegu stemninguna ákváðum við samt að grilla;) Það var nú allt annað en auðvelt að finna þessa blessuðu þætti, og við vorum við það að gefa upp vonina þegar Ævar bjargvættur kom okkur til bjargar (sem er einmitt tilgangurinn með bjargvættum;) og lánaði okkur fyrstu 13 þættina. Þannig að við gengum í átt að Lost þáttunum okkar (bara tvö okkar í skóm og eitt á tánum....) og það ferðalag tók óvart 2klst. Heimsóknin til Ævars og Unnar varð semsagt aðeins lengri en gert var ráð fyrir, og áður en að við vissum af vorum við, einhverra hluta vegna, búin að koma okkur vel fyrir inni á baði (5 manns inni á baði í klukkutíma...?). Albert færði "klósett"partýið alltaf nær og nær hurðinni og á endanum tókst honum nú að koma okkur út og við héldum heim á leið. Komum samt við og fengum fartölvuna hans Alberts með okkur. Þegar við vorum loksins búin að koma okkur fyrir uppi á videolofti hjá mér með Brynjuís, popp, fartölvuna, sængur og hina langþráðu Lostþætti á diski, héldum við að okkur væri borgið, en nei! Fyrst virtist tölvan ekki vilja spila diskinn, og svo þegar það tókst loksins að samfæra hana um það kom í ljós að það vantaði fyrsa þáttinn. En við létum það að sjálfsögðu ekkert á okkur fá, heldur horfðum á Lost þangað til við sofnuðum, og nutum þeirra ótrúlega, enda búin að hafa meira fyrir þeim en... en ég veit ekki hvað! Þegar við vöknuðum horfðum við á meira Lost og fórum svo og grilluðum pylsur og banana og borðuðum restina af Brynjuísnum! Jebb, þetta var besta útilega sem ég hef farið í lengi;)

Auður | 15:34 |

sunnudagur, júlí 17, 2005

Jæja, þá er maður komin úr Borgarfirðinum. Keyrði suður Kjöl á föstudag og var í sumarbústað um helgina. Eeen á fimmtudaginn, þá átti ég afmæli! Ég er semsagt orðin 17 ára! Átti mjög góðan dag í vinnunni, það var spari veður í tilefni dagsins og yfirmenn og undirmenn tóku lífinu með ró. Um kvöldið fylltist svo húsið af peðum og pizzum og var mikið borðað, spjallað og hlegið! Eitthvað fékk ég náttúrulega af gjöfum þennan dag, eitthvað á ég eftir að fá og eina var ég búin að fá. Það er nú skemmtilegast að segja frá þeirri sem ég fékk fyrirfram, en það var miði á Live8 tónleikana. Magnús bróðir gaf okkur systrunum miða, mér í afmælisgjöf og Kristjönu í útskrifargjöf, og fórum við saman á þessa heimsklassa tónleika. Ekki bara var þetta stærsti tónlistarviðburður sögunnar, með öllum flottustu og frægustu tónlistarmönnum heims, heldur var þetta líka liður í tilraun til að gera heiminn að betri stað. Þetta var lítið annað en fullkominn dagur, algjörlega ólýsanleg upplifun!
Jæja læt þetta nægja í bili, þangað til næst;)

Auður | 15:29 |

þriðjudagur, júlí 05, 2005


Now we can see
If our democracy
Is just a game you play
No matter what we say!
G8-We are watching you.

Sting á Live8 tónleikunum;)


We don't want your money- we just want your NAME!

Auður | 17:47 |

mánudagur, júlí 04, 2005

Jæja, þá er maður kominn heim. Fór semsagt í ör-heimsókn til bróður míns með systur minni og móður til að halda uppá útskriftir systkina minna, úr HÍ annarsvegar og London Business School hinsvegar. Þrátt fyrir að hafa bara stoppað í stuttan tíma tókst mér að gera ýmislegt!
Fyrsta daginn fór ég í Tower of London og hlustaði á alls konar mis geðslegar sögur (þetta er náttúrulega frægasta fangelsið í London) og fór svo að skoða krúnudjásnin. Þá var setningin "mig langaði ekkert í þennan asnalega leðurjakka hvort-eð-er" látin flakka, veit ekki hversu miklum skilningi hún mætti. Kristjana gerði líka heiðarlega tilraun til að stela þarna (læt það liggja á milli hluta hvað það var sem að hún stakk í vasann) en hún komst ekki alveg upp með það... Bömmer...
Útskrifin hans Magnúsar var á föstudaginn. Það var rosa flott athöfn og svo var boðið uppá kampavín og jarðaber í hallargarðinum(skólinn er í höllu drottningar). Eftir útskrift fórum við á Lion King söngleikinn, sem var ÆÐI! Söngurinn, dansinn, búningarnir og allt var flott, frábært, FULLKOMIÐ! Hef líka sjaldan séð svona mikið af fallegu fólki samankomið á einu sviði;)
Ég kynntist fullt af fólki, fór í bíó, á tónleika út að borða, á tónleika, skoðaði borgina og lék við systkini mín og mömmu. Frábær ferð!
Jæja læt þetta nægja í bili, framhald síðar;)

Auður | 17:36 |

fimmtudagur, júní 30, 2005

London baby! Ja, nu er madur kominn aftur til London, eeeelska London! Keyrdi i gearkvoldi og var komin til Reykjavikur um midnaetti. Svo reif eg mig upp til ad saekja Stefaniu fraenku a Leifsstod kl 6 i morgun. Hun er buin ad vera i Bandarikjunum i ar, og eg var ekki litid glod ad sja hana, to stutt vaeri. Fullkomin byrjun a friinu. Keyrdi svo aftur til Keflavikur (hef aldrei farid 3 ferdir milli Seltjarnarness og Keflavikur a orfaum klukkutimum) og flaug til London... Eeeeelska London!
Jaeja, kedjur fra London!
P.S. Einu sinni enn, LONDON! :D

Auður | 00:35 |

fimmtudagur, júní 23, 2005

Jæja það sem er helst í fréttum í dag er að Branan mín fór til stóðhests í gær! Sá heppni heitir Ísar frá Hólshúsum og er Gustssonur. Ég er ekki lítið spennt að sjá hvað kemur útúr þessu, en I have a good feeling about it! :D Þannig að, eftir tæpt ár verður Brana komin með Brönu-baby og ég orðin amma! Eða eitthvað... ;)
Fleira gott... Jú, ég skrapp heim í Skagafjörðinn um heligina, LOKSINS! Það var vægast sagt orðið allt of langt síðan að ég fór þangað síðast og það var að vonum vel tekið á móti mér. Að vísu hafði ég hitt litlu systkinin og Svönu á miðvikudeginum, en þá komu þau í bæinn og buðu mér á Greifann:D Það var ótrúlega endurnærandi að komast svona aðeins heim í sveitina og ég get ekki beðið eftir að komast þangað aftur! Síðan þá hef ég bara verið í vinnunni minni (sem er geeeeðveikt skemmtileg by the way;) og safnað sólbrúnku (sólbuna í dag reyndar!). Good times;)
En jæja, vildi bara aðeins láta vita af mér...
Þangað til næst bara:)

Auður | 22:03 |

þriðjudagur, júní 14, 2005

Ó, þessi óvissuferð! Já, ég var í óvissuferð með Rígskrökkunum um helgina, þvílík gleði! Við fórum fyrst á Ýdalaball og gistum á tjaldsvæðinu, sem var stuð:D Næsta dag keyrðum við í Dimmuborgir, og þegar við vorum komin saman á bílastæðið fyrir framan heyrðum við allt í einu óma um allt svæðið: "Sagði ég pása?!?" Jú mikið rétt, Þorleifur Örn Arnarsson var mættur á svæðið! Lýðurinn náttúrulega trylltist og fleygði sér um hálsinn á honum, og ég held að það sé einróma samþykkt að þetta (að sjá Þorleif ss) var hápunktur ferðarinnar! Við fórum í ratleik í Dimmuborgum sem Þorleifur okkar hafði sjálfur skipulagt, og þegar hann var búinn söfnuðumst við saman og fórum í spurningakeppni. Þorleifur vildi þá vita hvort að við værum í formi og við máttum gera magaæfingar, armbeygjur og brjóstkassahopp og syngja þóðsönginn á meðan. Þegar við vorum búin að því sagði hann: "Jæja, annan hring, Ísland farsældar frón!" Við störðum á hann og ætluðum ekki að trúa okkar eigin eyrum, þangað til einhver sagði: "Afhverju ættum við að hlusta á þig, þú ert ekki leikstjórinn okkar!" Það var auðvitað það sem hann hafði verið að bíða eftir og var mjög hissa (en jafnframt ánægður, sadistinn!) að við skyldum hafa hlýtt honum það lengi. En jæja;)
Næst fórum við í jarðböðin í Mývatnssveit og eftir það fórum við á eyðibýlið Heiði og komum okkur fyrir fyrir nóttina. Unnur Birna (sem komst ekki í ferðina afþví að hún er svo mikill hotshot fiðluleikari að sinfóníuhljómsveitin þurfti hana til að spila á tónleikum) kom þangað og kætti mannskapinn enn meira! Í draugahúsinu (það var einróma samþykkt, þó aðallega af Unni Birnu, að húsið væri reimt með meiru) grilluðum við, fórum í feluleiki, draugaleiki, partý og co og trivial, en umfram allt töluðum og nutum þess að vera saman. Við höfðum náttúrulega saknað Þorleifs mikið (sem hafði einmitt verið mikið rætt áður en að hann mætti óvænt á staðinn!) og éggetsvosvariðþað að hann hafði saknað okkar líka! Hann féll amk inn í hópinn eins og hann hefði aldrei farið!
Næsta dag (eða bara nokkrum klukkutímum seinna, Þorleifur þurfti svo mikið að tala og vinna ALLA í ÖLLUM spilunum að við fórum mjög seint að sofa) borðum við morgunmat, kvöddum eyðibýlið og keyrðum til Akureyrar. Þorleifur fór í flug en við hin fórum í Kjarnaskóg að leika okkur! Þar var haldin krikketkeppni og leikið í öllum leiktækjum! Eftir það fórum við á kaffihús og svo í bíó. Ferðin var semsagt búin um hálf 11 á sunnudagskvölið og það er ekki hægt að segja annað en að hún hafi verið frábærlega vel heppnuð og yndisleg í alla staði!

Auður | 17:20 |

þriðjudagur, júní 07, 2005

Jæja þá er maður bara búinn í prófum! Þvílík hamingja!! Eða hvað... Jújú vissulga er það frábært að geta hugsað um eitthvað annað en próf og próflestur, en það er líka pínu sorglegt að vera búin í skólanum! Og ég er líka að uppgötva neikvæðu hliðarnar á því að vera í heimavistarskóla... Allir vinirnir stinga af á sumrin! Það er ekkert spes! Eeeeen ég meina maður sér þau aftur í haust... :) Ég ætlaði sko þvílíkt að njóta þessa eina sumarfrísdags, en gleymdi því eiginlega og er ekki búin að gera neitt sniðugt eða skemmtilegt... DÓ! En kannski ég kíki á Brönuna og skreppi á bak í rigningunni! ;)
Ætla samt að hafa það rosa gaman á næstunni, hitti peðin mín á morgun, teiknimyndagrúbbuna á fimmtudaginn og svo er óvissuferð með Rígskrökkum um helgina! Gleði gleði! :D
En jæja læt þetta nægja í bili!... :)

Auður | 15:11 |

þriðjudagur, maí 31, 2005

Nú er stærðfræðin bara búin! Við Theodóra lærðum stærðfræði í samtals 34klst yfir helgina, ótrúlega harðar;) Í tilefni dagsins tók ég alveg brilljant próf á quizilla:
butterfly... pretty!
You are a butterfly! Attractive and ephemeral, you
dance through life with a smile for everybody
and nothing upsets you for long - let's face
it, for a butterfly, life's too short!
You are easily distracted, and important things
just fall our of your head when something
pretty comes into view. In fact, you've
probably lost interest in this quiz already...


What kind of insect are you?
brought to you by Quizilla

Heheheh kemur á óvart, ekki satt;)
En jæja, ég ætla að fara að þykjast vera dugleg, það eru víst enn eftir fjögur próf þó að stærðfræðin sé búin...:)
Þangað til næst...

Auður | 12:32 |

miðvikudagur, maí 25, 2005

Íþróttafræði er alveg hreint ótrúlega leiðinlegt fyrirbæri! Langaði bara að deila því með ykkur...
En já, ég er semsagt að byrja í prófum, það fyrsta á morgun og það síðasta mánudaginn 6. júní (a lifetime away...). Þið sem eigið leið hér hjá eruð vinsamlegast beðin að hugsa fallega til mín á þessum erfiðu tímum (sérstaklega næstu 2 mánudaga, þá eru stærðfræði og jarðfræði!)... :)
(Með uppgjafartón) Þangað til næst...
P.S. Gimbrin mín heima á Ökrum var að eignast 2 mórauð lömb, eina gimbur og einn hrút! Myndi vera mjög hamingjusöm yfir þessu, en finnst sniðugra að væla bara yfir því að missa af sauðburði! :( ;)

Auður | 20:48 |

laugardagur, maí 21, 2005

Jæja nú er aftur komin helgi og það styttist óheyrilega í próf! Ekki það að það komi í veg fyrir að maður skemmti sér, ónei;) Á fimmtudaginn var, eins og flestir vita, Eurovision forkeppnin og ákváðum við Theodóra á síðustu stundu að smala saman peðum til að horfa með okkur. Eitthvað gekk þessi last-minute smölum illa og enduðum við bara með eitt peðalamb með okkur, hana Margréti okkar. Þrátt fyrir það hvað það var fámennt var rosa gaman hjá okkur, en gleðin dó algjörlega hjá 2/3 hópsins þegar úrslitin voru tilkynnt. Sumir lifa fyrir Eurovision, aðrir ekki;)
Svo var það teiknimyndakvöldið. Á miðvikudagskvöldið gerði 5/7 hluti teikimyndakrúsins heiðarlega tilraun til að funda um skipulagið, en eftir að hafa eytt tveimur klukkustundum í að horfa á Albert og Theodóru rífast um ágæti paprika og Sölku fá panikk kast yfir því að skilja ekki neitt því allt færi svo hratt, komumst við að því að MSN fundir eru ekki sniðug leið til að komast að niðurstöðum. Þess vegna ákvað Theodóra að halda fund kl 9:43 í löngu (Theodóra bauð sig jafnframt fram til þess að vera ritari fundarins og sjá um að skrifa á töfluna) og var það einróma samþykkt að Guðni myndi fara upp á svið að tilkynna fundinn og biðja alla meðlimi teiknimyndakrúsins að mæta á fund í H9.
Theodóra fékk reyndar ekki töflu til að skrifa á, en við funduðum samt í kvosinni. Þar héldu áfram umræðurnar um paprikurnar og ég þykist vita að við eigum eftir að fá að heyra meira af því... Ekki tókst samt að komast að neinum niðurstöðum og var mikið rökrætt hvort að það ætti að panta pizzu, og þá hvort frá Greifanum eða Domino?s, eða baka hana. Auðvitað var bara ein leið til að útkljá þetta mál, og Albert og Theodóra tóku Rock, Paper, Scissors á þetta. Theodóra vann, sem þýddi að það yrði bakað. Þvínæst voru skipaðar uþb 37 nefndir, tónlistarnefnd, innkaupanefnd, bökunarnefnd, teiknimyndanefnd og myndatökunefnd svo eitthvað sér nefnt.
Föstudagskvöldið rann upp og allir mættu í Holtateiginn kl 6 (nema Albert náttúrulega, hann verður alltaf að vera síðastur til að passa uppá kúlið) og hófst þá baksturinn. Ekki leið á löngu áður en að húsið var nokkurn veginn komið á hvolf, búið að saxa niður hálft kíló af ananas (sem enginn vildi borða by the way), rífa niður heilu fjallgarðana af osti, gera dularfull, falin skilaboð í pizzurnar og skreyta þær svo með nammi... og fleiru. Með sameiginlegu átaki tókst að koma pizzunum í ofninn án stórkostlegra hrakfalla og þar voru þær nokkurn veginn það sem eftir var kvöldsins, þær ætluðu aldrei að bakast! Á endanum nenntum við ekki að bíða lengur og rifum þær út, en þá kom í ljós að önnur þeirra var hálfhrá en hin ofbökuð. Við borðuðum þó báðar með bestu lyst og fullt af nammi og snakki sem innkaupanefnd hafði séð fyrir. Við horfðum á Shrek og ætluðum að horfa á Shrek 2 þar á eftir, en hún fannst ekki þannig að við horfðum á Iceage í staðinn. Klassamyndir báðar, og við hlógum mikið og skemmtum okkur. Svo þegar við vorum búin að horfa á myndirnar (og nokkrir búnir að fá sér þann blund sem þeir þurftu á að halda) og við vorum búin að horfa á allt það aukaefni sem var á þessum tveimur diskum, ákváðum við að horfa á Iceage á various tungumálum... Við horfðum á góðan part af myndinni aftur og prófuðum öll tungumálin sem var boðið uppá. Síðast settum við Nemo í og horfðum á mismunandi fiskabúr (á sænsku) þangað til Albert tók af skarið og gerði sig líklegan til að fara. Þá var klukkan nefnilega orðin ansi margt og fólk átti í mestu erfiðleikum með að koma sér á lappir og heim. Með sameiginlegu átaki tókst það þó og þá var Hrefna engillinn á bíl og gat komið öllum heim. Nema Alberti, þau létu hann hjóla... ;)
Þetta var að öllu leyti frábærlega vel heppnað kvöld og vel skipulagt. Nefndirnar stóðu sig flestar ótrúlega vel, ekki síst myndatökunefnd, sem sá til þess að næstum 100 myndir voru teknar!
En jæja, hugsiði vel til mín, ég þarf að fara að læra fyrir próf! :(
Þangað til næst...

Auður | 18:03 |

mánudagur, maí 16, 2005

Ég ætla að segja aðeins frá helginni. Ég hafðu hugsað mér að fara heim í Skagafjörðinn til að kíkja á sauðburð og hitta fjölskylduna og vinina þar (þau hafa náttúrulega varla séð mig neitt síðan fyrir Ríg!), en hætti við þegar ég uppgötvaði það að það voru tónleikar í bænum á laugardeginum sem ég gat ekki misst af. Svo fór reiðkennarinn minn á fullt við að plata mig til að keppa á Brönu minni á hestamóti (taka skal fram að ég hef aldrei gert það áður, sennilega aldrei þorað). Afþví að ég er svo hörð að ég gat ekki látið það fréttast að ég þyrði ekki, og vegna þess hafði ekki lengur þá afsökun að vera ekki í bænum, sló ég til á endanum... Já GÓÐUR! Manstu afhverju þú verður í bænum? Jánei, ég mundi það ekki og fór að hugsa um það eftir á að líklega væru nú tónleikarnir og þetta blessaða hestamót á nákvæmlega sama tíma. Flott!
Ég sá fram á að þetta yrði ekki góð helgi, bestu vinirnir að fara út bænum, hestamótið, krísan útaf tónleikunum og svo ferming á sunnudeginum. Þetta hljómar kannski ekki eins og uppskrift að hræðilegri helgi fyrir flest fólk, en það gerir það fyrir mig! Það að vera Theodóru-laus yfir heila LANGA helgi er slæmt, hvað ætti ég að gera allan daginn? Hestamótið yrði mjög slæmt, ég vissi alveg að ég myndi líklega fara yfirum af stressi og leggjast fyrir með kvíðakast. Svo fermingin, úff. Ég átti semsagt að syngja í fermingarmessu á sunnudagsmorgun OG mæta í veislu um miðjan daginn. Fermingarmessur eru einu messurnar sem ég ÞOLI EKKI! Svo er ég alls ekki veislu týpan... ;)
En hins vegar rættist ótrúlega úr þessari helgi! Ég mætti uppí hesthús uppúr 9 á laugardagsmorgun og við Brana kepptum í fjórgangi um 11 leytið. Það gekk ótrúlega vel þrátt fyrir það að ég það að ég skalf eins og hrísla útaf stressi;) Svo áttum við að mæta til leiks kl hálf 2 og þá tókum við létt töltprógramm. Þegar ég kom útaf vellinum dró ég upp símann og hringdi í Gutta, vin pabba og bað hann um að sækja mig upp í hesthús. Ég spretti af merinni í miklum flýti og skipti um föt (held að ég hafi aldrei farið úr reiðfötunum í venjuleg án þess að fara í sturtu, en þetta var neyðartilfelli!) og stökk svo uppí bíl til Gutta og bað hann um að keyra mig niður í tónó. Þar laumaði ég mér á aftasta bekk (fannst ég mjög out of place svona nýkomin úr hesthúsunum) og hlustaði á YNDISLEGA tónleika! Við erum að tala um tónleika sem voru svo frábærir, fiðlutónlist sem var unaðsleg, og fiðluleikara sem var svo ... Það eru bara ekki til orð til að lýsa hrifningu minni! Ég gleymdi mér alveg í tónlistinni, en svo þegar tónleikarnir voru búnir stökk ég upp í bíl til Gutta aftur og lét hann keyra mig í loftköstum uppí hesthús, á útslitin. Þar var ég svo þar sem eftir var dagsins og kom heim þreytt, og ótrúlega sæl, um kvöldmatarleytið. Við Brana vorum ekki lítið stoltar af okkur og ég hef varla talað um annað en snilli fiðluleikarans síðan á tónleikunum! Góður dagur!
Dagurinn í gær var... Tjah, hann byrjaði á mjög langri og strangri messu, kirkjan troðfull af fólki og súrefnið á loftinu hjá okkur af mjög skornum skammti:) Svo kom Kristjana systir heim og við fórum saman í örheimsókn í fermingarveislu hjá frænku okkar. Fleira gerði ég ekki þann daginn;)
Jæja, þetta er orðið gott held ég, ætla að leika við systur mína í allan dag;)
Þangað til næst...

Auður | 18:00 |

miðvikudagur, maí 11, 2005

Jæja, mér ber víst skylda til að blogga almennilega, þar sem Kristjana er í prófum og vantar eitthvað að gera... ;)
Ég gæti jafnvel sagt einhverjar fréttir... Nú aðalfrétt dagsins er að Theodóran mín var að eignast litla systur!! Stúlkan sú fæddist kl 18:18 á sjúkrahúsinu núna áðan og heilsast vel! ;) Innilega til hamingju með þetta! (Taki þeir til sín sem eiga;)
Nú svo mætti líka minnast á jarðfræðiferðina sem ég fór í í gær. Einar jarðfræðikennari fór með fulla rútu af B og D bekkingum austur í Mývatnssveit til að skoða öll jarðfræðifyrirbærin sem þar eru að finna. Við gerðum ýmislegt, td príluðum við uppá Hverfjall og svo niður í Dimmuborgir, gengum í kringum Leirhnjúk og enduðum svo á að baða okkur í Stórugjá. Mjög vel heppnuð ferð held ég bara!
Í dag mættum við Rígskrakkar niður í Kvos til að láta taka viðtal við okkur fyrir DVD-diskinn okkar. Við Theodóra fórum að sjálfsögðu saman í viðtal, við erum miklu betri þannig;) Að vísu vorum við í annarlegu ástandi á meðan á viðtalinu stóð, og það verður spennandi að sjá hvað kemur útúr því! :)
Ég fór beint þaðan uppí Breiðholt þar sem HestMA félagar biðu eftir mér(heldur angraðir) og fórum við í dágóðan reiðtúr í góða veðrinu. Að vísu var frekar fámennt, en það var góðmennt og skemmtum við Brana okkur amk mjög vel:) Meira svona HestMA!
Annars hef ég lítið að segja fleira... Kristjana ef að þér leiðist mjög geturðu bara lesið þetta nokkrum sinnum;)
Þangað til næst... :)

Auður | 21:16 |

föstudagur, maí 06, 2005

Sem sagt! Ég ákvað að flytja hingað í þunglyndiskasti eftir Ríginn, og ætla að halda mig við þá ákvörðun. Eftir að hafa lært fullt um HTML og svoleiðis dót fannst mér folk.is svo óspennandi... Þannig að síðustu 2 vikurnar er ég búin að vera að vesenast með HTML kóða og dót og útkoman er þessi svaðalega bleika síða, þvílíkt stolt! :D
En ég ætla að láta þetta nægja í bili, síðan er hérmeð opnuð! :D

Auður | 15:30 |

::about a girl::

Ég er bara Auður...

::Bestu lögin::

The Sign með Ace of Bace baby

Harmonikkuleikarinn með Jóel Páls (og reyndar einhverri Brynhildi)

Stærri en Allt með Ævarandra og Hauki

::Bestu bækurnar::

Hitchhiker's guide to the Galaxy
Lord of the Rings
Harry Potter

::Quote::

"Shh! We're hiding. Everyone be quiet. That includes me. Shh! Who's making that noise? Oh, it's me again."
Julian úr Madagascar

"I liked them first! You hate them compared to how much I like them!"
Mort úr Madagascar

::Bloggarar::

Björgin mín
Guðni gaur
Hildigunnur gella
Kristjana systir
Lilja kerling
Margrét mús
Sezzý Ís
Sigga mín Ásta
Sigrúnita sæta
Sigurlína skagfirðingur
Theodóra elskan
Unnur sæta
Ævar snillingur

::Góðar síður::

Muninn
Rígurinn
IMDB
Huginsstjórnin, þessar elskur
Jóel Pálsson (nei ég er ekki að grínast;)

::Myndir::

Fjölskyldumyndir

Peðamyndir

Skagafjarðarmyndir

Rígsmyndir

Kattarmyndir

::Teljari::

hit counters

Stanslaust stuð!

****


*

*

*

*
Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com